Vörur
Bílavörur
Aukarafkerfi
| Nýjustu fréttir | ||
|---|---|---|
|
||
| Aukarafkerfi |
|
|
Upplýsingar Nýju aukarafkerfin frá Samrás er byltingarkennd nýjung. Kassinn er aðeins 3,5 sm þykkur og kemst því fyrir í öllum, nánast yfirfullum, vélarhúsum nýrri bíla. Aukarafkerfið er 13 rásir, þar af 8 rofastýrðar rásir og 5 fastar rásir. Kassinn er vatnsþéttur með gúmmíþéttingu í lokinu
Takkaborðið er með 9 tökkum þ.e. einn aukatakki. Takkaborðið er úr svörtu rafbrynjuðu áli með laser skornum merkingum. Þegar kveikt er á aðalljósum bílsins kemur dauft ljós á takkanna sem verður bjart þegar kveikt er á viðkomandi rás.
Tvær rásir eru sérstaklega ætlaðar fyrir mikinn straum, t.d. kastara. Stýristraumar eru valdir með DIP rofum sem gerir ísetningu og notkun kerfisins einstaklega auðvelda og fljótlega. Í aukarafkerfinu eru ENGIN RELAY, sem slitna og bila, heldur transistorar með innbyggðri yfirhitavörn og yfirálagsvörn. Transistorarnir eru með útgang fyrir straummælngu. Hægt er að kaupa straum og spennu- mæliskjá sem sýmir straum á hverri rás ásamt spennu á rafkerfi bílsins. |
| < Fyrri | Næst > |
|---|
